Svona leit bréfið út....
Ágæti viðtakandi úr hinum glæsilega og
einstaka árgangi ´83 úr
"Gaggó"Sauðárkróks.
Það hefur verið ákveðið að
halda bekkjarmót þetta
sumarið, nánar tiltekið laugardaginn 22. júlí og ert
þú hér með vinsamlegast
beðin að taka þann dag frá til að koma á Krókinn. Það er
skyldumæting hjá
öllum þeim sem komast, aðrir eru afsakaðir ef Helga Elísa leyfir
og því þarf að senda allar afsakanir til athugunar hjá henni og
þarf hún að samþykkja þær. Endilega reynið eins og þið getið að
komast því um er að ræða svakalega skemmtun, villt partý,
brjálaða útihátíð með fljótandi nesti í för, berbrjósta konur ef
veður leyfir, stráka á bandabrókum, endurkoma “Björgunarsveitar
Simma og Bóbó” (fyrir þá sem ekki vita þá er það björgunarsveit
Jóns Heiðars og Gunnars Sig, sem hefur náð aðeins einum árangri,
að kveikja í bílskúrnum hjá mömmu og pabba Gunna). Leynigestur
kvöldsins er Gríslingur (ef þið vitið ekki hver það er þá er
bara að fletta í árbókinni). Svo er verið að vinna í því að fá
Backstreet boys til að troða upp eða þá að við finnum bara
einhverja til að vera í boxinu.... Davíð við treystum á
þig.....
J
Sunna Björk kemur alla leið frá
Danmörku til að redda tónlistinni og hefur marga smellina upp í
erminni, þar má nefna “Saturday night”, “All that she wants”,og svo
vangalagið sívinsæla “It must have been love”... og já ekki má
gleyma Prodigy!!! Verið er að vinna í því að fá Pétur Árna til að
sjá um veggjaskreytingarnar, Ellis ætlar að koma bara til að vera
sætur
J
, Berglind sér um kennsluna (í drykkjuleikjunum), Margrét Björg sér
um að koma öllum í rétta stuðið, Dagný Ósk sér um alla áfallahjálp
og Sessa sér um að þjóna og strákar, ef hún fær nóg af tipsi þá
gerir hún það ber að ofan
J
En svona í fullri alvöru þá
erum við að tala um að eyða saman laugardeginum, borða um kvöldið
og svo tjútterí eftir það. Nánari upplýsingar verða sendar þegar
nær dregur en á meðan er hægt að kíkja inn á heimasíðu árgangsins
www.blogg.central.is/argangur_83.
En til þess að passa það að
allir sem segjast ætla að mæta, mæti, höfum við ákveðið að setja
upp smá staðfestingargjald
1.000,- fyrir einstakling og 2.000,- ef maki kemur með (já....
mökum er boðið að koma með í matinn og á djammið) og skal
leggja það inn á
0301-13-133333 kt:
140783-5289 og skal það hafa borist okkur ( nefndinni)
fyrir 16.júní. Sú upphæð
gengur svo upp í lokaverð, sem er ekki alveg vitað enn sem komið
er, verður hugsanlega í kringum 4.000,- kr í heildina (og 1.500
- 2.000,- kr fyrir maka) en reynt verður að halda því í
lágmarki. Svo erum
við að leita að gömlum myndum og minningum, svo endilega sendið
okkur myndir, pistla eða bara ef þið hafið einhverjar hugmyndir
um skemmtun á argangur_83@hotmail.com
eða hringja í
símanúmer 867-2196 (Sunna) eða 867-2215 (Helga). Einnig ef ykkur
vantar gistingu.
Kær kveðja Svakalega-Nefndin
J
................ Njótið....