Blogg-IÐ

árgangur 83-Skr

14.07.2006 17:23:57 / Guðbjörg

ATH!!! BORGA!!!!! ATH!!!!!

Síðasti séns að greiða bekkjarmótsgjaldið er í dag. Ef ekki er greitt kl. 24.00 að íslenskum tíma í dag, föstudaginn 14.júlí, verður ekki gert ráð fyrir viðkomandi og verður sá hinn sami því ekki vitni að þeirri stórgóðu skemmtun sem framundan er. Fyrir þá sem ekki hafa nú þegar náð því sem að ofan greinir þá er allra síðasti séns að greiða bekkjarmótsgjaldið Í DAG, FÖSTUDAGINN 14. JÚLÍ. Allar upplýsingar um hvernig á að greiða og hversu mikið er postað hér að neðan.

Ástæðan fyrir því að síðasti séns er í dag er sú að Jón á KK (eðal veitingastaðnum sem mun sjá um matinn) er farinn að rukka nefndina og þar sem nefndinni þykir nú með eindæmum gott að sitja á KK þá vill hún ekki lenda í vandræðum á þeim bænum. Að auki hefur bekkjarmótssjóður ekki fjármagn í að greiða fyrir fólk.

Endanleg dagskrá bekkjarmótsins verður birt um helgina ásamt matseðli

Keðja,

Svakalega - nefndin

Davíð Már skrifaði
hæj elskurnar... hvar er það mikið fyrir einstakling + maka... kom hvergi fram held ég... Legg inn um leið og þið segjið mér töluna :)
Kári Arnar skrifaði
Það er 3000 á mann. Þ.a. ef þú ert búinn að borga 1000 fyrir bæði þig og maka þá er það 4000 í viðbót :)
Dagný Ósk skrifaði
Jú mikið rétt og takk fyrir þetta Kári!
MargrétB skrifaði
Jæja, helgin búin og svona! hvernig verður þetta prógramm? Ég er orðin svo spennt að ég get eiginlega ekki beðið lengur? Hvað með ykkur?? ;o)
sunna björk skrifaði
prógrammið og matseðillinn ættu að detta hérna inn í dag! Ég hlakka þvílíkt mikið til að sjá alla aftur, alveg að farast úr spenningi :)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 10428
Textabox
Jahúúú...
Klukkan